English

Borgar sig að fara út í kvöld?

LightGlance safnar öllu sem landslagsljósmyndari skoðar áður en lagt er af stað á einn skjá: sólinni, gullnu og bláu stundinni, skýjunum, norðurljósunum, tunglinu og sjávarföllunum. Eitt augnatillit og þú veist hvort kvöldið er þess virði.

Allt, í einu augnatilliti.

Ekkert flakk á milli veðurapps, sólarreiknivélar, norðurljósaspár og sjávarfallatöflu. LightGlance safnar þessu saman á einn rólegan skjá og svarar í orðum: gott kvöld fyrir sólsetur, fyrir norðurljós, eða til að vera heima.

Yfirlitið í LightGlance á Gróttu: „Gott kvöld fram undan fyrir sólsetur“, með sólarskífu, sjávarfallaklukku, gullnu ljósi 14:41, sólsetri 16:33, bláu ljósi 17:10, áttavita, norðurljósum, skýjum og tungli.
Yfirlitið á Gróttu

Undir svarinu eru rökin, hver þáttur náttúrunnar í sínum lit. Eftir nokkur kvöld lestu skjáinn án þess að lesa orðin.

Gullna stundin, upp á mínútu.

Gullið ljós hefst þegar sólin fer niður fyrir 6°. Bláa stundin er þegar hún er milli −4° og −6°. Skífan sýnir allan sólarhringinn í einum hring, með hádegi efst.

Prófaðu. Dragðu sólina um skífuna og sjáðu birtuna á síðunni fylgja með.

  • Gullið ljós–
  • Sólsetur–
  • Blátt ljós–

Dragðu sólina, eða notaðu örvatakkana

Vittu hvar sólin sest.

Lyftu símanum og áttavitinn snýst með þér: „Sólsetur 18° til vinstri.“ Kortið dregur línur að sólarupprás og sólsetri frá þeim stað sem þú stendur á.

Skipuleggja skot finnur dagana þegar sólin sest beint á bak við tindinn, kirkjuna eða drangann sem þú velur, og minnir þig á þegar kvöldið kemur.

Verður himinninn í ljósum logum?

Lágský byrgja sólina. Háský grípa litina. LightGlance les öll þrjú lögin tíma fyrir tíma og segir þér hvað þau þýða fyrir sólsetrið.

Vindurinn fær líka eina línu: lygnt vatn fyrir speglun, eða hviður sem halda drónanum heima.

Dæmi um spá

Bláa stundin. Svo tunglið.

Kvartil, tunglris og tunglsetur þar sem þú ert.

Dagatal sýnir tunglið hverja nótt mánaðarins, svo þú getur skipulagt fullt tungl yfir fjalli eða dimman himin vikur fram í tímann.

Norðurljós, án ýkja.

Kp, myrkur, skýjahula og tunglsljós, sett saman í einar heiðarlegar líkur. Þegar það borgar sig að fara út færðu tilkynningu. Annars sefurðu.

–Kp í kvöld
0 rólegt5 stormur9
Lifandi spá frá NOAA SWPC

Vittu hvenær fjaran er þín.

Flóð og fjara fyrir allar hafnir í sjávarfallatöflum Landhelgisgæslunnar, með ábendingu fyrir stórstreymi. Klukkan vísar upp á flóði og niður á fjöru.

Sjávarföllin ná yfir Ísland í bili. Aðrar strendur koma síðar.

Dæmi: Reykjavík

Gert fyrir myrkrið.

Næturstilling gerir allt appið rautt, svo augun haldist vön myrkrinu á meðan þú stillir upp. Þessi síða gerði það sama rétt í þessu.

LightGlance er í prófun á TestFlight. Skildu eftir netfang og við sendum þér boð þegar pláss losnar.

Einn póstur þegar pláss losnar. Ekkert annað. Persónuvernd

Væntanlegt: widgets á lásskjá og app fyrir Apple Watch.

Sama yfirlit í næturstillingu, allt í dökkrauðu.
Næturstilling